Þvottasnúrufiðrildi / Laundry line butterfly

My laundry line butterfly is exceptionally beautiful isn't it ? Is incredible how much peace is around butterflies while you watch them fly and how beautiful they are. Me at least I have never ever seen an ugly butterfly and I have to admit that I think they don't even exist. One thing that makes me really sad though is this theory that I heard the other day and have been constantly ever since trying to forget. That butterflies live only for a day ! Is it possible, I hope not ;)
Þvottasnúrufiðrildið mitt er alveg einstaklega fallegt, finnst ykkur ekki? Sveimar í endalausa hringi kringum mig meðan ég hengi upp þvottinn minn. Einkennadi fyrir fiðrildi hvað þau eru falleg og mikil ró sem stafar af flugi og flögri þeirra. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei séð ljótt fiðrildi og geri fastlega ráð fyrir að þau séu hreinlega ekki til. Eitt sem mér finnst rosa leiðinlegt sem ég heyrði einu sinni og hef stöðugt verið að reyna að gleyma síðan er kenningin um það að fiðrildi lifi bara í einn dag. Er ég þá alltaf að tala við nýtt fiðrilidi á hverjum degi og það skilur ekkert um hvað ég er að tala þvi að ég er kannski ad halda áfram með einhverja sögu frá deginum áður ! En er þá bara að tala við soninn eða dóttirina eða hvur veit hvern ! hmm.... ef að einhver fiðrildaspekulant gæti informerað mig um þetta mal yrði ég mjög hamingjusöm. Vona samt að þetta sé ekki satt ;)


2 Comments:
At 11:26 AM,
Anonymous said…
ég held nú að fiðrildin lifi nú lengur en bara enn dag, trúi ekki öðru...
Er ekki annars bara tóm hamingja í fótboltalandinu!!! Ekki slæmt að Ítalía haf komist í úrslit HM á afmælisdegi Rocco :-)
Með sólarkveðju (já, þú last rétt!!) úr Reykjavík
Ingibjörg sem er alveg rétt bráðum (á föstudaginn í næstu viku) að komast í frí
At 3:13 AM,
afinnnnnn said…
þetta er fallegt fiðrildi sem sækir í félagskap við snúrurnar. oftast finst mér að fiðrildi vilji ekki félagskap. þetta fiðrildi lifir allt sumarið ef það verður ekki fyrir óhappi. kemur á snúrurnar þegar þú ert þar. ég held að fiðrildi séu fagurkerar.
ég held að það sé aðeins ein tegund að fiðrildum sem lifa bara í einn sólahring, og svo ekki aftur fyrr en ári seinna.
oft á tíðum haldin eru héraðsmót
þangað vilja sækja bæði sveinn og snót,
............................................................
...........................
.............?
Post a Comment
<< Home